Færsluflokkur: Tónlist
Fimmtudagur, 28. september 2006
Poppuð færsla
Síðan ég hætti að eiga geislaspilara og keypti ipod hef ég ekki haft jafn gaman að tónlist og áður. Mér finnast geisladiskar miklu eigulegri heldur en stakir mp3 fælar. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar mamma kom með geisladiskasafnið mitt um daginn. Ég hlýt að hafa eytt bróðurpartinum af unglingaríkidæminu í geisladiska. Þeir eru ansi margir. Sumir eru eftir virðulega tónlistarmenn sem er verjandi að hlusta á. Flestir falla ekki í þann flokk.
Ég á óteljandi söngleikjadiska. Þegar söngleikjatímabilið mitt reið yfir kunni ég best við þá söngleiki sem þóttu ekki einu sinni nógu góðir til að sýna á Broadway. Síðan las ég lýsingar á söngleikjunum á netinu og giskaði í eyðurnar.
Restin af diskunum er aðallega með píkupoppssöngkonum. Ég á til dæmis heila átta diska með Mariah Carey. Á ákveðnum tíma í lífinu komast flestar stelpur að því að allt sem þeim finnst skemmtilegt og kúl er í rauninni mjög hallærislegt. Ekki síst tónlistarsmekkurinn. Ég faldi yfirleitt diskasafnið mitt þegar vinir mínir komu í heimsókn.
Nokkru seinna þegar ég fór í menntaskóla lenti ég í rifrildi við einhverja stráka um það hvort ákveðnar poppsöngkonur hefðu næga hæfileika til að mega flíka þeim. Þeim fannst þær svo miklir aular að semja ekki einu sinni tónlistina sjálfar á meðan miklir listamenn sem þeir þekktu persónulega gátu ekki einu sinni lifað af list sinni. Og þótt þessar gellur "væru kannski skrifaðar fyrir hinum og þessum lögum" þá var það bara eitt stórt blöff. Á bak við eina konu hlutu að vera nokkrir karlmenn sem sömdu öll lögin.
Það er nú kannski meira en lítið til í því að píkupopptónlistarheimurinn sé kynjaður en mér finnst ömurlegt að bæta því við söngkonurnar í honum séu hæfileikalausar. Auk þess er ekki eins og utan vinsældapoppsins ríki jafnrétti.
Um daginn sá ég viðtal við upptökustjórana sem ætla að gefa út disk með Lay Low. Sú er nú ekki lítið talent. Mér fannst samt viðtalið við upptökukallinn heldur asnalegt. Hann hélt því fram að fyrir Lay Low hefði ekki fyrirfundist íslensk söngkona sem væri ekki bara söngkona heldur tónlistarhöfundur og hljóðfæraleikari. Er hann einhver vanviti? Kommon...
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

malacai
almaogfreyja
almapalma
andreaolafs
aring
annalilja
annapala
arnith
ormurormur
aslaugosk
bleikaeldingin
brisso
dagga
rassgat
dofri
hafmeyja
kamilla
gilsneggerz
vefarinnmikli
vglilja
ghe13
heida
kroll
helgatryggva
hlynurh
ibbasig
ingvalg
johannbj
hugsadu
konur
hjolaferd
magidapokus
bidda
woland
matthildurh
millarnir
poppoli
olafurfa
paul
palinaerna
salvor
sms
soley
steindorgretar
manzana
thelmaasdisar
truno
vefritid
ver-mordingjar
theg





