Þrenna frá helvíti

Gallabuxur, hjólreiðar og hellidemba er kombó sem segir ekki sex.

Heppileg staðreynd


Það jafnast ekkert á við...

...að rekast á nammi sem maður keypti fyrr um daginn en gleymdi að borða.

Gæludýrasaga

Þegar ég var lítil átti ég tvo kettlinga, einn páfagauksunga og þrjá fiska. Öll dóu þau svo voveiflegum dauðdaga á fyrstu mánuðum lífs síns að eflaust væri hægt að semja vinsæla barnavísu um harmleikinn.

Páfagaukurinn hét að mig minnir Gáski. Honum fannst ég einstaklega leiðinlegur krakkaormur og hlýddi mér yfirleitt ekki. Ég var ekki hirðusamur krakki og trassaði einhvern tímann í langan tíma að kaupa páfagaukamat handa fuglinum. Eftir áhyggjulausa pabbahelgi fékk ég pabba til að kaupa páfagaukamatinn og keyrði heim.

Mamma var vandræðaleg þegar ég kom heim því að Gáski var dáinn. Hann hafði þó ekki orðið hungurmorða heldur hafði mamma gefið honum haframjöl. Þá lærði ég mikilvæga lexíu sem er að haframjöl þenjast út í mögum og ef magar eru litlir (eins og í páfagaukum) þá springa magarnir undan álaginu. Ég sá aldrei páfagaukshræið en velti lengi fyrir mér hvernig sprengingin hefði litið út.

Hin gæludýrin fóru svipaðar leiðir. Ég túlkaði þetta þá og geri enn sem svo að ég eigi ekkert með að pína ómálga verur í hættulega umsjá mína enda hentar slíkur hryllingur aðeins í ógeðslegar bíómyndir.


Nú er ég bit

Stelpa í strætóskýli að tala í símann:

"Jú, það var voðalega gaman á árshátíðinni. Nema ég var kosin ljóskan en ég skyldi alls ekki hvers vegna."


.

Þessa dagana finnast mér færeysk pjónamunstur meira spennandi en allt námsefni annarinnar samanlagt. Einkum og sér í lagi myndi ég henda líffræðilegu mannfræðibókinni með öllum sínum samsætum og kirnum í gryfju fulla af kylfuóðum neanderdalsmönnum ef það stæði til boða.

Karma

Þið sem hafið áhyggjur af því að ég hljóti ekki makleg málagjöld fyrir öll mín hrekkjabrögð getið nú hrósað happi. Í gær týndi ég síma (og debitkorti) og einhverjir strákasnar fundu símann og dunduðu sér við það í dag að senda dónaskilaboð og hrella alla í símaskránni minni. Sem betur fer fyrir mig er stutt síðan ég eyðilagði gamla símann svo ég held það séu ekki nein viðkvæm númer í þessari skrá. Sem betur fer fyrir þá veit ég vel að ég myndi gera nákvæmlega það sama við alla síma sem ég myndi finna í snjónum, svo ég er ekkert brjálæðislega reið.

Rottan sem hringdi í þig

Litli bróðir minn er tíu ára. Í morgun hringdi stelpa í hann sem sagði ekki til nafns og ég bar þau skilaboð áfram að einhver stelpa hefði hringt í hann. Af viðbrögðum hans að dæma hefði mátt halda að ég hefði sagt honum að rotta hefði hringt í hann.

Minna fífl

Ég strengdi eitt áramótaheit. Ég ætla að reyna að vera aðeins minna fífl á nýju ári en þeim liðnu.

Písa hvað?

Ég held að heimurinn væri aðeins betri ef aðeins fleiri væru aðeins lélegri í stærðfræði.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband